Veðurstofa Íslands vill vekja athygli á óvenju öflugri lægð, miðað við árstíma, sem fer yfir landið á þriðjudag og miðvikudag
Á þriðjudag verður lægðin vestur af landinu og vindáttin því suðaustlæg og má búast við að vindstyrkurinn verði á bilinu 10-18 m/s, einna hvassast um landið SV-vert og hviður við fjöll allt að 35 m/s. �?essu fylgir mikil rigning, mest sunnanlands síðdegis og um kvöldið.
Á miðvikudag er að sjá að lægðin fari til norðausturs og verði skammt norður af landinu. Á þessari stundu er óvíst hvar versta veðrið verði, en vísbendingar eru um að mesti vindurinn verði úr norðvestri um landið suðvestanvert um kvöldið á meðan mesta úrkoman verður líklega norðvestanlands og á Vestfjörðum.
Síðan er gert ráð fyrir að lægðin fari til austurs og ákveðin norðanátt taki yfir með rigningu fyrir norðan, en þurrt að kalla syðra.
Lítið þarf út af að bera í staðsetningu lægðarinnar til að áhvarða hvar versta verðið verður á hverjum tíma, þannig að einhverra breytinga er að vænta þegar nær dregur.
Samkvæmt ölduspá á sigling.is er hækkandi alda við Landeyjahöfn og því líklegt að einhverjar truflanir verði á siglingum þangað í vikunni.