Einar Sverrisson í ÍBV
Selfyssingurinn Einar Sverrisson mun spila með ÍBV næsta vetur en hann hefur verið lánaður frá 1. deildarliði Selfoss til Íslandsmeistara ÍBV. Einar, sem er 22 ára, leikur í stöðu leikstjórnanda og skyttu en hann var markahæsti leikmaður Selfyssinga í 1. deildinni síðasta vetur, með 104 mörk í 19 leikjum. Einar hefur auk þess leikið með yngri landsliðum Íslands, m.a. með U-21 árs landsliðinu og þykir mikið efni. Einari er ætlað að fylla skarð Róberts Arons Hostert sem yfirgaf Eyjaliðið og hélt til Danmerkur í atvinnumennsku.
Handknattleiksdeild ÍBV hefur myndað nýja leikmenn hér og þar, m.a. um borð í skipum. �?eim þótti hins vegar ekki við hæfi að skella Selfyssingnum um borð í fiskiskip og því fór undirskriftin fram í lyftingasal ÍBV, enda Einar stór og sterkur strákur sem mun eflaust eyða góðum tíma í að refsa lóðunum í lyftingasalnum næsta vetur.
Rætt er við Einar í myndbandinu sem fylgir fréttinni.

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.