Kílóin sigruðu

ÍBV-B er komið í 8-liða úrslit Coca Cola-bikarsins í handbolta eftir vægast sagt ótrúlegan sigur á �?rótturum. Lokatölur 21:20 og allt ætlaði um koll að keyra í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja þegar úrslitin voru ljós. Eyjamenn voru með stjörnum prýtt lið en margir gamalkunnir handboltakappar léku leikinn auk annarra yngri sem stóðu sig frábærlega. Eyjamenn tóku forystuna […]

55 ár í dag frá komu fyrsta Herjólfs

Núverandi Herjólfur er eins og flestir vita sá þriðji í röð Herjólfa og hafa þeir allir þrír ætíð verið mikið meðal tannanna hjá Eyjamönnum. Og nú að undanförnu hefur sá fjórði sem enn er þó á teikniborðinu einnig mikið verið í umræðunni. Ekki er von á öðru en að svona verði þetta um ókomna tíð. […]

ÍBV B tekur á móti �?rótti í kvöld

Leikmenn B-liðs ÍBV vilja minna Eyjamenn alla á stórleikinn gegn �?rótti í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18. Nú þegar hafa Afturelding, Akureyri, FH,Haukar, ÍBV, Stjarnan og Valur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum og vilja leikmenn B-liðsins ólmir slást í þann hóp. �?rotlaus undirbúningur liðsins er nú að baki og […]

Aukaflug hjá Erni á laugardag

Vegna eftirspurnar þá hefur flugfélagið Ernir sett upp aukaflug til Eyja á morgun, laugardaginn 13. desember. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að flogið verði frá Reykjavík klukkan 12 og frá Vestmannaeyjum klukkan 17. Hægt er að bóka flug á ernir.is og símum 562-2640 og 481-3300. Fyrstir koma, fyrstir fá. (meira…)

Dean Martin fékk frítt í golf fyrir að spila

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi knattspyrnuþjálfari hjá ÍBV, gerði upp síðasta tímabil í viðtali í sjónvarpsþættinum 433.is á ÍNN í gærkvöld. Hann talaði um erfiða skuldastöðu ÍBV, gagnrýndi bæjarstjórn Vestmannaeyja fyrir að taka ekki upp frístundakort og sagði að leikmannahópurinn hafi verið allt of þunnur hjá meistaraflokki karla. Sigurður sagði að hann hefði viljað vita um […]

Spennandi verkefni hjá Grími kokki

Fiskur er hollur og góður matur en gæti hann verið hollari? Að því hefur Grímur kokkur ásamt Matís unnið á undanförnum árum. �??�?rátt fyrir að heilsusamleg áhrif þess að neyta fjölómettra fitusýra séu margsönnuð er þeirra ekki alltaf neytt í nægu magni vegna þess að neysla á feitum fiski er frekar lítil á Íslandi. Matís […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.