Dean Martin fékk frítt í golf fyrir að spila
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi knattspyrnuþjálfari hjá ÍBV, gerði upp síðasta tímabil í viðtali í sjónvarpsþættinum 433.is á ÍNN í gærkvöld. Hann talaði um erfiða skuldastöðu ÍBV, gagnrýndi bæjarstjórn Vestmannaeyja fyrir að taka ekki upp frístundakort og sagði að leikmannahópurinn hafi verið allt of þunnur hjá meistaraflokki karla. Sigurður sagði að hann hefði viljað vita um fjárhagsstöðu ÍBV fyrr í ferlinu, en á tímapunkti hafi verið tekið fyrir öll leikmannakaup.
Sigurður Ragnar nefndi sem dæmi að hann hafi leitað til Dean Martins, 42 ára aðstoðarþjálfara, um að spila með liðinu til að styrkja hópinn. �??�?g veit ekki hvort ég megi segja það, en hann fékk sem sagt frítt í golf í sumar, það var samningurinn hans hjá ÍBV,�?? sagði Sigurður í viðtalinu og hló. �??�?annig að hann var meira að hjálpa liðinu, það var ekki breidd, við vorum í basli með breiddina,�?? bætti hann við.
Einnig var rætt við Sigurð Ragnar um nýtt starf hans hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lilleström, en hann hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Rúnars Kristinssonar. Sigurður sagði að hann myndi flytja til Noregs í janúar og fjölskyldan í framhaldi þegar hann hefði fundið húsnæði í Noregi.
Rætt er við Sigurð Ragnar um veruna hjá ÍBV í seinna hluta þáttarins sem hefst á 13. mín.

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.