ÍBV B tekur á móti �?rótti í kvöld
Leikmenn B-liðs ÍBV vilja minna Eyjamenn alla á stórleikinn gegn �?rótti í 16-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18. Nú þegar hafa Afturelding, Akureyri, FH,Haukar, ÍBV, Stjarnan og Valur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum og vilja leikmenn B-liðsins ólmir slást í þann hóp.
�?rotlaus undirbúningur liðsins er nú að baki og bíður þjálfaranna það erfiða verkefni að velja leikmannahópinn úr breiðum hópi manna sem allir eru tilbúnir í verkefnið. Síðast er fréttist til þeirra nú í morgunsárið voru þjálfararnir enn undir feldi og voru meira að segja komnir undir sama feldinn til að freista þess að ná niðurstöðu í leikmannaval sitt. Verður því spennandi að sjá hverju þetta skilar en ljóst er að markmið liðsins og þjálfarana er aðeins eitt; ÍBV-B skal spila í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins á nýju ári.
Leikmenn B-liðsins hlakka til að sjá sem flesta í Íþróttamiðstöðinni kl. 18 í kvöld. Hvítu riddararnir verða að sjálfsögðu á staðnum og munu keyra upp stemmninguna. �?að er því óhætt að lofa taumlausri skemmtun.
Bikarkveðjur,
Leikmenn B-liðsins

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.