Vestmannaeyjahlaup verður haldið í áttunda sinn laugardaginn 1. september. Boðið verður upp á 5, 10 og 21 km. Það er Eyjaskokk sem stendur að skipulagningu á hlaupinu. Vestmannaeyjahlaupið var valið götuhlaup ársins 2017 hjá hlaup.is en þetta er annað árið í röð sem að hlaupið hlýtur nafnbótina.

Þátttökugjöld og skráning
Hægt er að skrá sig í hlaupið á hlaup.is og einnig verður hægt að skrá sig samdægurs í Íþróttamiðstöðinni til kl. 11. Eitt þátttökugjald er í hlaupið, óháð veglengd eða 3000kr. Allur ágóði að hlaupinu rennur til góðgerðamála í Vestmannaeyjum. 

Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hverri vegalengd. Einnig verða veitt glæsileg útdráttarverðlaun. Allir hlauparar fá minjagrip sem þátttökuviðurkenningu. 

Frítt í Herjólf fyrir hlaupara
Frítt er í Herjólf fyrir einstaklinga (ekki bíla) fram og til baka (100 frímiðar í boði). Ferðirnar fyrir hlaupara eru kl. 9:45 frá Landeyjarhöfn og kl. 18:30 frá Vestmannaeyjum. Listi með nöfnum þeirra sem panta Herjólfsferð verður í Landeyjarhöfn og í Vestmannaeyjum þannig að nóg er að sýna skilríki til að komast í ferðina.

Nánari upplýsingar
Þú getur líka fylgst með hlaupinu á Facebook og á vef hlaupsins, www.vestmannaeyjahlaup.is.
Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.

Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.