Hildur Sólveig Sigurðardóttir – sjúkraþjálfari

Höfuðverkir eru eitt algengasta sjúkdómseinkennið sem hrjáir fólk og þar af leiðandi valda höfuðverkir gjarnan veikindafjarvistum og draga úr lífsgæðum fjölmargra. Höfuðverkir eru meðal algengustu kvilla taugakerfisins og skiptast í mismunandi flokka. Þar á meðal eru mígreni, spennuhöfuðverkir og lyfjahöfuðverkir.

Höfuðverkir geta einnig komið fram sem einkenni mismunandi vandamála á borð við háþrýsting, sjónskerðingu, sótthita ofl.

Hvað get ég gert sjálf/ur?
Ef þú þjáist reglulega af höfuðverk láttu þá athuga sjón og blóðþrýsting, drekktu vel af vatni, hreyfðu þig reglulega, fáðu ráðgjöf um góða líkamsstöðu, líkamsbeitingu og vinnuaðstöðu, dragðu úr streitu og álagi, sofðu hæfilega en bæði of lítill og of mikill svefn getur valdið höfuðverkjum, forðastu ofneyslu áfengis og tóbaks og temdu þér notkun sólgleraugna – í þau fáu skipti sem sólin lætur sjá sig  :).

Hvenær er höfuðverkur hættulegur?
Ef þú upplifir skyndilegan sterkan höfuðverk, ógleði eða uppköst, breytta meðvitund, háan hita eða stífleika á aftanverðum hálsi, krampa, sjóntruflanir eða stjórnleysi eða tilfinningaleysi í höndum eða fótum skaltu tafarlaust leita læknishjálpar.