Í Eldheimum byrjar Safnahelgin að þessu sinni með opnun á sýningu á ljósmyndum Sigurðar A. Sigurbjörnssonar eða Didda Sig í anddyri safnsins. Diddi er fær ljósmyndari, með einstaklega næmt auga fyrir litríku landslagi Eyjanna. Sýningin opnar kl 17:00 fimmtudaginn 1.nóv. Sýningin verður opin alla helgina frá 13:00 – 17:00.

Kristinn R. Ólafsson og Cubalibre sögur og tónar frá Kúbu
Á föstudagskvöldið er kúbanskt þema. Hinn góðkunni fréttamaður og fararstjóri Kristinn R. Ólafsson mætir með nýju Kúbubókina sína. Bókin heitir Soralegi Havana þríleikurinn og er þýðing Kristins á verki kúbanska rithöfundarins Petro Juan Gutierrez. Þetta er mögnuð bók sem lýsir vel lífsbaráttunni á Kúbu, en þar er bókin bönnuð vegna ádeilunnar á ríkjandi ástand landsins. Texti Kristins er vandaður og verður mjög áhugavert að hlusta á hann lesa valda kafla og segja frá Kúbu, en þar er hann mjög kunnugur.

Til að ná enn frekar upp Kúbustemningu hefur verið sett saman splunkunýtt band Cubalibre, sem ætla að hita upp með nokkrum kúbönskum tónum. Dagskráin hefst kl. 20:30 á föstudagskvöldinu 2. nóv.