Á morgun, fimmtudag verður opnuð sýning á nýjum olíumálverkum eftir Tolla á Vestmannaeyjaflugvelli. Sýningin er samvinnuverkefni Isavia, rekstraraðila flugvallarins, og Tolla.
Sýningin hefur ferðast um landið síðan fyrsta sýningin var opnuð í flugstöðinni á Egilsstöðum í september í fyrra. Auk Egilsstaða og nú Vestmannaeyja hefur Tolli boðið upp á samskonar sýningar í flugstöðvunum á Akureyri og Ísafirði. Sýningin mun standa fram yfir verslunarmannahelgi. Boðið verður upp á léttar veitingar á morgun, fimmtudag frá kl. 16-18:30.
Tímasetning sýningar Tolla í flugstöðinni í Vestmannaeyjum er ekki tilviljun. Goslokahátíð og hátíðarhöld vegna 100 ára afmælis Vestmannaeyjabæjar hefjast þennan dag, 4. júlí. Sýning Tolla er hluti af þeim hátíðarhöldum.
Sýningin í flugstöðinni í Vestmannaeyjum er sú síðasta í röðinni hjá Tolla að fara hringinn í kringum landið. Í framhaldinu er stefnam tekin á því að því að nýta rými flugstöðva á Íslandi til að styðja við ungt listafólk á hverjum stað og gera því mögulegt að koma verkum sínum á framfæri þar.
Listamaðurinn Tolli er ekki þekktur fyrir að fara troðnar slóðir þegar kemur að sköpuninni, framsetningu á listinn eða vali á sýningarrými. Síðustu misseri hefur málarinn sótt aftur í ræturnar og ferðast um landið en hann hefur oft talað um það að árin sem farandverkamaður hafi mótað hann mikið á yngri árum. Það kemur fram í listinni um leið og landsbyggðin togar sífellt í hann. Tolli hefur sýnt víða, í yfirgefnum verksmiðjum, tónlistarhúsum og í verslunarmiðstöðvum. „Mér finnst áríðandi að fara með listina á vettvang. Hafa hana ekki fasta í sínu verndaða umhverfi sýningarsalanna í borginni. Heldur vil ég fara með hana til fólksins.“ segir Tolli og bætir við:
„Ég ryð brautina og vinn með Isavia í því að gera flugstöðvarnar sýningavænar og nota mína list til að venja farþega og ferðalanga við hugmyndina að búið að sé að setja upp sýningarrými í þessum fallegu byggingum. Svo koma flottir ungir listamenn sem eru að springa úr sköpunarkrafti og fylla þessi rými af enn meiri gleði,“
Fleiri fréttir af Goslokahátíðinni og 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar má lesa hér.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst