Umbrotatímar með Svabba Steingríms í Svölukoti
3. júlí, 2019

Svavar Steingrímsson, pípulagningameistari, lífskúnstner með meiru verður með athyglisverða sýningu í Svölukoti við Strandveg um goslokahelgina.

Sýningin verður opnuð klukkan 18.00 á fimmtudaginn og kallast Umbrotatímar með Svabba Steingríms sem eru ljósmyndir sem Svavar tók í gosinu 1973. Sindri Ólafsson, dóttursonur Svavars valdi myndirnar í samráði við afa sinn og vann þær undir prentun.

„Í allt eru þetta um 600 myndir sem ég tók í gosinu og ætlaði mér aldrei að gera neitt með þær en Sindri sagði að þarna væri fróðleikur sem þyrfti að koma fram áður en ég hrekk upp af. Við völdum 46 eða 47 myndir sem Sindri hefur hreinsað og eru þær að koma úr prentun,“ sagði Svavar sem er hinn sprækasti þrátt fyrir að vera kominn á níræðisaldurinn. Gengur reglulega á Heimaklett og finnur sér ýmislegt til dundurs annað en að láta sér leiðast.

„Ég eignaðist myndavél mjög snemma en varð aldrei húkkt á því að taka ljósmyndir eins og Palli bróðir,“ sagði Svavar og á þarna við Pál bróður sinn, myndlistarmann, ljósmyndara og kvikmyndagerðarmann með meiru.

Fyrstu myndirnar í gosinu tók Svavar gosnóttina þegar hann aðstoðaði við að bjarga búslóðinni á Oddsstöðum sem var eitt af húsunum sem stóð næst gossprungunni. Næstu dagar fóru í búslóðaflutninga og vinnu uppi á landi. Þegar í ljós kom að það vantaði pípara til Eyja dreif hann sig út með Þorleifi Sigurlássyni, samstarfsmanni í pípulögnunum og stóð svo vaktina allt gosið. 

 „Ég átti tvær vélar en lagði annarri eftir fyrstu nóttina og notaði hina, Minoltavél sem reyndist mér vel en endtist gosið og svo ekki söguna meir. Allt eru þetta „slightsmyndir“ og teknar á öllum stigum gossins. Sindri er búinn að hreinsa þær og laga og er það mjög vel gert. Er allt annað sjá myndirnar. Þarna eru líka nokkrar loftmyndir sem ég tók þegar ég fékk að fljóta með Lofti Harðarsyni, flugmanni sem átti flugvél á þessum tíma,“ sagði Svavar að endingu og vonast hann til að sjá sem flesta á sýningunni.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.