Við erum svo ánægð með hversu fallega veitingarmenn og konur í Vestmannaeyjum hugsa til okkar þessa dagana.  Segir í frétt á vef Hraunbúða. “Á föstudag og sunnudag fengum við ljúffengar íssendingar úr Tvistinum frá Bigga Sveins og Lóu.  Á laugardagskvöldið sendu Pizza 67 okkur öllum gómsætar pizzur sem slógu í gegn.  Við erum svo innilega þakklát því öll tilbreyting í lífið skiptir svo ótrúlega miklu máli, sér í lagi á þessum tímum.

Kærar þakkir frá Hraunbúðum :)”