Síðustu daga hafa farið fram sýnatökur í Vestmannaeyjum fyrir m.a. fyrirhugaðar mótefnamælingar hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þeim sem hafa lokið einangrun og sóttkví vegna COVID-19 hefur verið boðið að koma og er búið að taka sýni (blóðsýni og háls- og nefkoksstrok) hjá um 500 manns. Ekki hefur náðst í alla og hugsanlega eru einhverjir sem ekki eru á listanum.

Boðið verður upp á sýnatökur aftur núna í vikunni, næst á morgun þriðjudag. Mig langar því að biðja þá sem hafa lokið einangrun eða sóttkví og ekki hafa fengið tilboð um að koma í rannsókn að senda tölvupóst í netfangið [email protected] ef þeir óska eftir að fá tíma.
Til að fá sem besta mynd af stöðu mála hér í Eyjum er mikilvægt að fá sem besta þátttöku. Hún er þegar orðin mjög góð, en ég vil hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tilboð.

Hjörtur Kristjánsson
Umdæmislæknir sóttvarna á Suðurlandi