Dagana 1. – 3. maí n.k. verður í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu boðið upp á sýnatökur í Vestmannaeyjum fyrir einstaklinga sem ekki hafa verið í sóttkví eða einangrun vegna COVID-19 – á sambærilegan hátt og verið hefur í gangi fyrir einstaklinga sem hafa verið í sóttkví og einangrun. Um er að ræða rannsókn þar sem tekin eru blóðsýni og háls- og nefkoksstrok. Tilgangurinn er m.a. að skoða betur hversu margir hafa tekið smit, þ.e.a.s. myndað mótefni gegn veirunni sem veldur COVID-19.

Hægt er að bóka tíma á vefsíðunni bokun.rannsokn.is
(beinn hlekkur: http://bokun.rannsokn.is/q/eyjar)

Ekki verður tekið við tímapöntunum í gegnum síma HSU.

Sýnatökur fara fram við HSU (heilbrigðisstofnunina) við bílastæði sunnan til (bílastæði á milli Sóla og HSU).

Þeir sem hafa lokið sóttkví/einangrun og eiga eftir að koma í sýnatöku geta haft samband í gegnum tölvupóstfangið [email protected] ef þeir vilja fá tíma.

Sumarkveðjur,

Hjörtur Kristjánsson

Umdæmislæknir sóttvarna