Fram kom á fundi framkvæmda og hafnarráðs í vikunni að löndunarkrani sem stóð á Edinborgarbyrggu hefur verið dæmdur ónýtur og verið fjarlægður. Framkvæmdastjóri kynnti að kostnaður við kaup á nýjum krana geti verið allt að 7,5 milljónir auk uppsetningar. Niðurstaða ráðsins var að fela framkvæmdastjóra að afla tilboða í nýjan krana.