Þá er loksins komið að alvöru herrakvöldi! segir í tilkynningu frá ÍBV. Veislustjóri verður enginn annar en Gummi Ben sem mun gleðja okkur með gamanmálum og sögum. Þá verður Dagur Sig með söngatriði en honum til halds og trausts verður Eyjamaðurinn Fannar. Geggjaður matur frá Einsa kalda og nóg um að vera. Herlegheitin fara fram í Kiwanis og opnar húsið kl 18, verðið er aðeins 5.000 kall og verða leikmenn í þjónustustörfum. Hægt er að kaupa miða á Rakarastofunni og með tölvupósti á [email protected]

Komdu fagnandi og hitum upp fyrir frábært sumar! Áfram ÍBV!