Blaðamaðurinn Jóhann Páll Ástvaldsson birti í morgun grein á ruv.is um flottustu fótboltavelli Íslands fyrir íþróttadeild RÚV. Það kemur fáum á óvart að Hásteinsvöllur var valinn flottasti völlur landsins af einvala hópi álitsgjafa. Þá voru Týsvöllur og Helgafellsvöllur einnig teknir fyrir.

Hópinn skipa:

  • Andri Geir Gunnarsson, annar helmingur fótbolta- og lífsstílshlaðvarpsins Steve Dagskrá
  • Arna Sif Ásgrímsdóttir, 12-A landsleikir og leikmaður Vals
  • Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ
  • Bolli Már Bjarnason, uppistandari og útvarpsmaður
  • Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður hjá RÚV
  • Gunnar Sigurðarson, Gunnar á Völlum
  • Helena Ólafsdóttir, sparkspekingur og stýrir umfjöllun um Bestu deild kvenna
  • Jóhann Skúli Jónsson, lögfræðingur og með hlaðvarpið Svona var sumarið
  • Klara Bjartmarz, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ
  • Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttamaður hjá RÚV
  • Logi Ólafsson, knattspyrnugúrú og sérfræðingur í gríni
  • Magnús Már Einarsson, þjálfari karlaliðs Aftureldingar
  • Páll Kristjánsson, formaður KR og sérfræðingur um knattspyrnuvelli
  • Stefán Pálsson, sagnfræðingur og stuðningsmaður Fram og Luton
  • Telma Ívarsdóttir, 11-A landsleikir og leikmaður Breiðabliks
  • Terje Mollestad, vallarsérfræðingur með heimasíðuna Nordic Stadiums
  • Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrrum formaður KSÍ og fyrsti kvenkyns aðalþjálfari á Íslandi
  • Willum Þór Þórsson, fyrrum þjálfari og núverandi heilbrigðisráðherra

 

Hásteinsvöllur trónir á toppnum en völlurinn ratar iðulega á lista yfir stórfenglegustu velli heims. Það eru fáir betri vellir á sólríkum sumardegi, með dalinn í bakgrunn. Þetta var í raun aldrei spurning.

Kristjana: „Það er erfitt að keppa við Vestmannaeyjar. Svo mörg voru þau orð.“

Vanda: „Glöggt er gests augað. Árin 2002 og 2003 var ég að þjálfa kvennalið KR og annað árið voru í liðinu tvær knattspyrnukonur frá Bandaríkjunum. Við fórum til Eyja að keppa við ÍBV og þær tvær gátu varla hitað upp, svo hrifnar voru þær af útsýninu frá Hásteinsvelli. Ég hafði satt að segja ekki tekið eftir þessu fyrr, ekki með þeim hætti sem ég gerði þarna. Ég stoppaði, horfði í kringum mig og tók inn alla þessa dásemd. Sannarlega eitt fallegasta vallarstæði landsins að mínu mati.“

Bolli: „Þarna kynntist ég knattspyrnu, ég bjó fyrstu sex ár ævi minnar í Eyjum. Andri bróðir minn fór með mig á nokkra leiki og það var ást við fyrstu sýn. Það keppir enginn völlur við fegurðina sem Hásteinsvöllur býr yfir. Það þarf ekkert að verja þetta val.“

Klara: „Eitt fallegasta vallarstæði landsins án efa.“

Arna: „Þetta var auðveldasta valið. Vallarstæðið fær 10,5 í einkunn. Orkan frá útsýninu og náttúrunni er rosaleg. Tala nú ekki um þegar þú slysast á sólríkan dag og 5 m/sek. Ekki langt síðan nýir klefar voru teknir í notkun sem eru stórir og góðir. Stúkan nálægt og áhorfendur geta nánast staðið inni á vellinum og gefið þér misvinaleg komment, alvöru læti.“

Adda: „Ekki spurning. Alltaf gott grasið, umhverfið í kringum völlinn dásamlegt. Alltaf gott veður þegar ég hef spilað þarna. Vel tekið á móti manni af heimamönnum, ávextir í klefanum, stórir og góðir klefar og síðast en ekki síst meistararnir í stúkunni sem svoleiðis láta mann heyra það allan leikinn. (Hallbera reifst við einhvern í stúkunni í hverjum einasta leik).“
Birkir: „Ægifagurt útsýni úr stúkunni yfir bjargið á móti. Klárlega flottasta vallarstæði landsins.“

Gunni Birgis: „Margir myndu eflaust hafa þennan í efsta sæti en fyrir mér er þetta ekki einu sinni í efsta sæti í Vestmannaeyjum. Frábær völlur engu að síður og náttúran verður ekki meiri einhvern veginn.“

Terje: „Stórkostlegur völlur. Umhverfið er stórbrotið og allt við þennan stað er töfrum líkast. Völlurinn sjálfur er frábær með tveimur flottum stúkum og fallegum náttúrulegum grasvelli. Vel þekktur innan samfélags vallaráhugamanna víða um heim. Allir vilja heimsækja þennan völl. Ég fór á leik gegn Val í júlí 2022 og þetta er einn af betri leikjum sem ég hef séð á minni ævi“

Telma Ívars: „Á góðum degi er þetta bara fallegasti völlur landsins og nýju klefarnir eru geggjaðir!“

Logi: „Vallarstæði í stórbrotinni náttúru. Frábær stemning á leikjum – háðsglósur að hætti Eyjamanna sem vekja hlátur og gleði, en allt er þetta góðlátlegt grín og særir engan.“
Magnús Már: „Stórkostlegt vallarstæði. Það er ástæða fyrir því að þessi völlur hefur ratað á lista í svona keppnum erlendis.“

Helena: „Það er eitthvað annað að spila undir heimakletti. Mér fannst alltaf virkilega gaman að koma til Eyja og spila við ÍBV. Minningin er kannski svona sterk vegna þess að mér gekk alltaf vel að skora mörk á þessum velli og vann oftast.“

Stefán Pálsson: „Þegar gervigreindinni var sýnd mynd af Hásteinsvelli brást hún við með því að segja: þetta er svindl! Ég get ekkert keppt við svona! Algjörlega stórkostlegt vallarstæði og einn af örfáum fótboltavöllum sem hafa leikið sjálfa sig í veigamiklu hlutverki í bíómynd.“

Þrátt fyrir að völlurinn hafi ratað á topp tíu lista nær allra álitsgjafa – en þó ekki hjá Jóa Skúla, fékk hann einnig að heyra það. Náttúran talar sínu máli en nánast umgjörð vallarins er ekki allra.

Gunnar á Völlum: „Er á listanum ekki vegna þess að hann er knattspyrnuvöllur. Ef ekki væri þessi sturlaða náttúra væri þessi völlur varla völlur.“

Páll: „Ekki hægt að setja saman svona lista án þess að hafa Hásteinsvöll. Völlurinn er sennilega þekktastur fyrir stórbrotna náttúrufegurð en á sama tíma tvö glötuð stúkumannvirki.

Nýja stúkan er alveg stórfurðulegt mannvirki. Forljótur steypuklumpur. Ótrúlegt að hann skuli ekki hafa verið staðsettur á öðrum vallarhelmingi eins og stúkan við Akureyrarvöll eða í Kaplakrika fyrir breytingar. Svo misheppnuð er hún. Maður hefði viljað sjá alvöru stúku með þjónusturými og tengingu við knatthúsið.“

Formaður KR er sérfræðingur í vallarmálum. Hann hélt úti hlaðvarpinu Klárum Skotland þar sem hann og Björn Berg Gunnarsson heimsóttu alla fótboltavelli Skotlands.

Helgafellsvöllur – guðdómlegur og fullkominn fyrir neðri deildir

Gunni Birgis (toppsæti): „Ef þú hefur ekki prófað að standa þarna á miðjum velli á góðviðrisdegi þá hefur þú ekki lifað lífinu til fulls. Þetta er einhvers konar andleg og líkamleg zen-un sem á sér stað þarna sem ekki er hægt að lýsa.“

Páll: „Völlurinn sem stendur við rætur eldfjallsins og varð til við vikurhreinsun. Stórbrotin staðsetning og tenging við eldgosið. Miklu flottari völlur en Hásteinsvöllur. Gömlu varamannaskýlin gera líka svo mikið fyrir þennan völl. Fullkominn neðrideildarvöllur.“

Týsvöllur – Jörgen inn á?

Svo er það völlurinn sem ansi margir hafa stigið fæti á, en þar fara fram yngri flokka mót í Vestmannaeyjum. Andri Geir hélt tryggð við sína nálgun. Hann hafði þá reglu að dæma einungis velli sem hann hefur spilað á.

„Þar sem ég var aldrei nógu góður til að spila á Hásteinsvelli þá varð ég að hafa Týsvöll inni. Maður spilaði þarna auðvitað eins og allir sem krakki á Pollamótinu. Spilaði svo aftur þarna í um átta mínútur árið 2022. Var þá staddur í Eyjum og fyrir algjöra tilviljun með Vaporinn með mér. Leikurinn var Knattspyrnufélagið Framherjar –Smástund gegn ÍH. Þarna var gott að hafa state of the art varamannaskýli þar sem það komu allir inn á á undan mér, þar á meðal strákur sem heitir Jörgen. 2-1 tap var niðurstaðan og væg náratognun en það er eitthvað við það að spila nánast í Dalnum.“