Vestmannaeyjabær auglýsti á dögunum eftir verðtilboði í endurskoðun og uppgjör bæjarins til þriggja ára, 2020 til og með 2022. Samkvæmt innkaupareglum Vestmannaeyjabæjar ber að auglýsa eftir verðtilboðum í þjónustu frá þremur aðilum, að jafnaði, þegar áætlaður heildarkostnaður er á bilinu 1 og 15 m.kr. Alls bárust þrjú tilboð í þjónustuna. Þau voru frá Deilotte, KPMG og PWC. Framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og fjármálastjóri bæjarins mátu umsóknirnar og upplýstu bæjarráð um mat sitt.

Bæjarráð hefur ákveðið að taka tilboði KPMG um endurskoðun og uppgjör Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2020 til og með 2022. Að teknu tilliti til verðtilboðs, reynslu fyrirtækisins ef endurskoðun sveitarfélaga og Vestmannaeyjabæjar sérstaklega, faglegrar almennrar endurskoðunar og stjórnsýsluskoðunar, er það mat bæjarráðs að tilboð KPMG sé það hagkvæmasta fyrir Vestmannaeyjabæ að þessu sinni.