Fyrsti heimaleikurinn, þar sem áhorfendur verða leyfðir eftir langt bann, verður í dag þegar ÍBV strákarnir fá botnlið ÍR-inga í heimsókn. Leikurinn hefst klukkan 13:30 og verður jafnframt sýndur í beinni útsendingu á ÍBV TV. En ÍR-ingar og dómarar leiksins komu til Eyja á í gær.
Eftir því sem fram kemur á facebooksíðu ÍBV þá eru þessum áhorfendum sett ströng  skilyrði. Það er því mikilvægt að koma eftirfarandi til skila og fyrir fólk að hafa í huga. LESIST VEL:
• Allir áhorfendur þurfa að bera andlitsgrímu, óháð aldri eða hvort viðkomandi hefur mótefni eða ekki
• Allir áhorfendur þurfa að sitja í sætum sínum á meðan þeir eru í salnum, óþarfa ráp er ekki æskilegt (m.a. börn)
• Áhorfendur skulu passa að halda a.m.k. 1 meters fjarlægð frá öðrum áhorfendum, nema þegar um tengda aðila er að ræða.
• Við komu á leikstað þurfa starfsmenn leiksins að skrá hjá sér nafn, kennitölu og símanúmer allra áhorfenda
• Börn skulu vera í fylgd með fullorðnum á leikjum
• Sjoppan verður ekki opin og engin barnapössun