Á morgun miðvikudag 8 maí verður glæsileg konu- og karlakvöld knattspyrnudeildar ÍBV.

Konurnar ætla að skemmta sér upp á Háalofti þar sem JÓNSI ætlar að gera allt vitlaust.  Boðið verður m.a. upp á gómsæta kjúklingarétti sem og ferska bleikju, steikta þorskhnakka og nýveiddan skötusel auk ýmsa annara rétta.

Karlarnir mun koma sé fyrir í Kiwanishúsinu og þar munu þeir Sigmundur Davíð og Brynjar Níelsson halda uppi aga á karlpeningnum.  Þar verður boðið upp á glæsilegt sjávarréttahlaðborð að hætti Einsa Kalda.

Húsin opna klukkan 19:00 og borðhald hefst 19:30.
Verð aðeins kr. 8.500.

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest og eiga gott kvöld saman.
Hægt er að nálgast miða í Týsheimilinu.