Öllu starfsfólki dvalar- og hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum verða boðin áframhaldandi störf og á sömu kjörum þegar Heilbrigðisstofnun Suðurlands tekur við rekstri heimilisins 1. maí næstkomandi. Starfsfólkið mun jafnframt halda áunnum réttindum sínum. Þetta er megininntak samkomulags sem heilbrigðisráðuneytið og Vestmannaeyjabær hafa gert með sér vegna yfirfærslunnar. Samkomulagið í heild sinni verður kynnt fyrir starfsfólki og hlutaðeigandi stéttarfélögum strax eftir páska.