Kristinn Guðmundsson annar þjálfari karlaliðs ÍBV hefur samið við EB frá Eiði á Austurey í Færeyjum og tekur til starfa hjá félaginu 1. júlí. „Ég er að fara í uppbyggingarstarf en það eru spennandi einstaklingar í kringum klúbbinn. Aðstaðan er frábær, þar á meðal tvö íþróttahús og mjög góð lyftingaaðstaða og nægur efniviður. Þetta verður ævintýri,“ sagði Kristinn í samtali við handbolti.is í gærkvöldi.

Kristinn kom til ÍBV sumarið 2018 og gerði þá þriggja ára samning við félagið. Kristinn þjálfaði áður Förde í Noregi.