Þá eru fyrstu listamennirnir staðfestir á stóra sviðið á Þjóðhátíð í Eyjum – Emmsjé Gauti, einn vinsælasti rappari landsins, og Aldamótatónleikarnir en þar stíga á stokk Birgitta Haukdal, Magni, Hreimur, Gunni Óla og Einar Ágúst – sannkölluð tónlistarveisla fyrir Herjólfsdal.

Í tilkynningu frá ÍBV segir að aldrei hefur verið jafn mikil eftirvænting fyrir hátíðinni og verður áhugavert að fylgjast með miðasölunni sem hefst kl.9:00 í dag á https://dalurinn.is/