Þjóðvegur eitt um Hellisheiði verður lokaður í dag mánudag þar sem stefnt er að því að malbika akreinar í báðar áttir neðst í Kömbunum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 9 að morgni til klukkan 20 að kvöldi og er umferð beint um Þrengslin á meðan.