Þjóðhátíðarnefnd sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem fram kemur að allt stefni í stærstu Þjóðhátíð frá upphafi og því við hæfi að tilkynna fleiri listamenn sem ætla að trylla Dalinn.

Þjóðhátíðarnefnd kynnir með stolti:
Bríet (á sinni fyrstu Þjóðhátíð) – Aron Can – Cell 7 – Herra Hnetusmjör – Jóhanna Guðrún – Bandmenn og Stuðlabandið. Í næstu viku verða tilkynntir enn fleiri listamenn. Það eru Tuborg, Pepsi Max, Red Bull og FM957 sem færa landsmönnum Þjóðhátíð í Eyjum.

Miðasala í fullum gangi á https://dalurinn.is/ – og nýjar ferðir til sölu í gamla Herjólf á föstudegi út til Eyja og heim á mánudeginum – sem eru vinsælustu ferðirnir og því gott fyrir fólk að tryggja sér þessar aukaferðir sem fyrst.