Bæjarstjóri greindi frá því á fundi bæjarráðs í gær að Vestmannaeyjabæ hafi borist drög að tímabundnum leigusamningi frá heilbrigðisráðuneytinu, um starfsemi hjúkrunarheimilis á vegum HSU á Hraunbúðum, meðan beðið er eftir heildrænni lausn á húsnæðismálum hjúkrunarheimila. Vestmannaeyjabær sendi sínar athugasemdir til baka og beðið er viðbragða heilbrigðisráðuneytisins. Bæjarráð þakkaði upplýsingarnar og brýnir í niðurstöðu sinni heilbrigðisráðuneytið að ljúka gerð samningsins á þeim nótum sem Vestmannaeyjabær leggur til.