Stórleikur fer fram í dag þegar KFS fær KFG í heimsókn á Hásteinsvelli kl 18.00. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu er Hanni Harði er búinn að lofa mikilli veislu fyrir áhorfendur og ekki er hann þekktur fyrir að svíkja sín loforð. Búist er við um 11 gráðum og logni og því engin afsökun að mæta ekki á leikinn. “KFS er í mikilli baráttu um þessar mundir, bæði í deild og bikar, og er því góður stuðningur virkilega mikilvægur fyrir okkur. Vonandi sjáum við sem flest á vellinum.”