ÍBV og Afturelding mætast í hörku leik á Hásteinsvelli í dag klukkan 14:00. Áhorfendasvæði verður skipt upp í nokkur hólf svo allir ættu að geta mætt á völlinn. Ekkert grill verður í hálfleik sökum gildandi reglna. Eyjamenn eru hvattir til að mæta í hvítu og láta í sér heyra og styðja ÍBV til sigurs!