Dregið var í þriðju umferð Evrópubikarkeppni kvenna, 32-liða úrslitum rétt í þessu í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu, EHF, í Vínarborg. ÍBV stelpurnar voru í pottinum ásamt lið KA/Þórs. ÍBV dróst á móti gríska liðinu AEP Panorama. Leikir 32-liða úrslita eiga að fara fram 13. og 14. nóvember og 20. og 21. nóvember. ÍBV á fyrri leikinn á heimavelli samkvæmt drættinum í hádeginu. KA/Þór stelpur fara til Spánar og mæta Club Balonmano Elche.