Vestmannaeyjabær hefur undanfarið unnið að umhverfisgreiningu sem mun liggja til grundvallar fyrir gerð umhverfis- og auðlindastefnu bæjarins.

Á íbúafundinum verða kynntar helstu niðurstöður umhverfisgreiningarinnar og farið yfir helstu viðfangsefni umhverfismála Vestmannaeyjabæjar. Markmið fundarins er einnig að fá fram hugmyndir frá íbúum varðandi aðgerðir fyrir umhverfisstefnu bæjarins.

Þeir sem taka þátt í gegnum vefstreymi munu geta tekið virkan þátt í fundinum og borið upp spurningar í gegnum netið.