Síðdegis í gær höfðu 926 manns skráð sig í The Puffin Run 2022 að sögn Magnúsar Bragasonar eins af skipuleggjendum hlaupsins. Fjöldi keppenda takmarkast við 1.000 manns. Í fyrra var fullbókað í lok febrúar. Það er því vissara fyrir þá hlaupara sem ætla að taka þátt í ár að skrá sig sem fyrst inn á thepuffinrun.com. Hlaupið fer fram 7. maí næst komandi.