Vonskuveður gekk yfir Vestmannaeyjar í nótt eins og spáð hafi verið. Meðalvindhraði fór á Stórhöfða fór í 35 m/s og 46 m/s í hviðum á fimmta tímanum í nótt. Björgunarfélag Vestmanneyja sinnti einu útkalli um það leiti þá fór klæðning að fjúka af íbúðarhúsi á Kirkju­vegi.

Versta veðrið hefur gengið niður en spáð er áframhaldandi hvassviðri til morguns.