Evrópuævintýrinu lokið

0
Evrópuævintýrinu lokið
Stelpurnar eftir æfingu á Spáni, mynd ÍBV

ÍBV er úr leik í Evrópubikarkeppninni í handknattleik kvenna eftir að hafa tapað í tvígang fyrir spænska liðinu Costa del Sol Málaga á Spáni í dag, 34:27. Fyrri leiknum í gær lauk með 11 marka sigri Málagaliðsins, 34:23, sem tekur sæti í undanúrslitum keppninnar.

ÍBV tók þátt í átta leikjum í Evrópubikarkeppninni á leiktíðinni gegn liðum frá þremur löndum. Fimm leikir unnust en þrír töpuðust.