Vegna veðurs og færðar verður hvorki sunnudagaskóli né guðsþjónusta í Landakirkju í dag.
“Við hvetjum alla þess í stað til að kveikja á kerti heima hjá sér og biðja fyrir bænarefnum sínum hvort heldur sem er í einrúmi eða með öðrum. Förum varlega” segir í tilkynningu frá Landakirkju.