Sameiginlegur framboðsfundur frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins til sveitarstjórnarkosninga 2022 verður haldinn í Ásgarði næstkomandi miðvikudag 23. mars kl.20:00. Prófkjörið mun fara fram um næstkomandi helgi og því gott að eiga stefnumót við frambjóðendur áður en til þess kemur.

Á fundinum munu frambjóðendur kynna sig stuttlega áður en þeir fara á milli borða og eiga samtal við fundarmenn. Fundurinn er öllum opinn sem vilja kynna sér frambjóðendur í prófkjörinu. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega þar sem fundurinn hefst á slaginu 20:00.

Allir eru hjartanlega velkomnir.Kjörnefnd Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum
Kjörnefnd Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum