Eyþór Harðarson

„Sæl og blessuð – var að spá hvort þið vissuð ekki af prófkjörinu hjá Sjálfstæðisflokknum ?“

Nokkurn veginn svona hafa mörg símtöl byrjað hjá mér síðustu daga, í þeirri baráttu sem ég henti mér í með því að bjóða mig fram í forystusætið hjá flokknum fyrir næsta kjörtímabil. Til viðbótar við símtölin, þá hef ég sent vinabeiðnir á fjölda fólks sem ég kannast við. Örugglega spyrja sumir sig „hvurn djöfulinn er hann að senda mér vinabeiðni“ ? Flestir samþykkja beiðnina en sumir eru varasamir og láta ekki svona pólitíkus bora sig inní facebook líf þeirra.

Ef maður ætlar að ná árangri í prófkjöri, þá þarf að kynna sig með einum eða öðrum hætti. Facebook og síminn eru góðir miðlar til að ná til fólks. Ég hef nýtt mér það að því marki sem mér er unnt.

Síminn og facebook duga ekki ein og sér til að ná árangri í prófkjöri. Ég vona að þátttaka mín í atvinnu -og félagsmálum vigti meira á endanum. Ég hef starfað sem verkamaður, rafvirki, sjómaður, rafmagnstæknifræðingur auk útgerðarstjórastarfs hjá Ísfélagi Vestmannaeyja frá 2003. Hef sinnt stjórnarstörfum hjá ÍBV-íþróttafélagi í aðalstjórn þegar Þór og Týr sameinuðust. Var í handboltaráði karla í mörg ár. Sat í stjórn Golfklúbbs Vestmannaeyja um skeið. Samkvæmt upptalningunni,  þá er ljóst að ég hef þurft að vinna með fjölda fólks í verkefnum sem eru ólík. En meginstefið er alltaf að vinna með fólki og finna lausnir.

Forystusætið er bæði spennandi og ögrandi takmark á lista sjálfstæðismanna, eftir að hafa verið varabæjarfulltrúi og setið í Umhverfis og skipulagsráði á síðasta kjörtímabili.

Ég tel mína reynslu ágæta í leiðtogahlutverkið á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kjörtímabil.

Eyþór Harðarson, sækist eftir 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna þann 26.mars.