Skipulagsmál hafa verið fyrirferðamikil í stjórnsýslu sveitarfélaga til langs tíma. Það eru vonbrigði fyrir okkur í minnihlutanum þegar sjónarmiðin sem hafa gilt um skipulagsmál í sveitarfélaginu, eigi ekki að gilda um göngustígagerð í Eldfelli.

Aðdragandinn
Ég verð að viðurkenna mikla meðvirkni sem ég féll í sumarið 2022 þegar hugmyndin að listaverkinu kom fyrst fram í bæjarráði í tilefni 50 ára goslokaafmælis sem átti að halda uppá ári síðar. Forsætisráðherra þáverandi ásamt góðu fólki tengt Eyjunum hafði komið heimsfrægum listamanni í kynni við Eldfellið og hugmynd kveiknaði að listaverki sem myndi verða vígt á áðurnefndu goslokaafmæli.

Framkvæmdin
Þá var lýst fyrir mér hugmynd að þessu verki, útbúið yrði svæði í hrauninu þar sem frá ákveðnu sjónarhorni yrði göngustígur í Eldfelli hluti af listaverkinu.
Þegar ég spurði hvernig þetta listaverk myndi líta út, þá var svarið að listaverk séu almennt bara frumsýnd einu sinni. Bæjarfulltrúar í Vestmannaeyjum kæmu ekki að hönnun listaverksins.
Þar sem að ég er ekki þekktur fyrir að vera gleðispillir, þá tók ég þann pólinn í hæðina að vera ekki á móti þessu verkefni og samþykkti eins og allir bæjarfulltrúar að Vestmannaeyjabær leggði til 50 milljónir í þetta listaverk sem til stóð að kostaði 120 milljónir. Ríkið kæmi með mismuninn.
Þegar nær dróg hátíðardagskrá í kringum goslokaafmælið þá varð ljóst að listaverkið yrði ekki tilbúið eins og til stóð á réttum tíma, og í raun vildi maður ekkert vera að forvitnast of mikið þar sem listaverk eru bara frumsýnd einu sinni.

Tímaseinkun og óvissan
Þegar við áttum okkur á því nú fyrir stuttu að engar upplýsingar lágu fyrir um tímasetningu á framkvæmd og hvað þá þeirri ásýnd sem listaverkið myndi hafa á Eldfellið, þá fannst okkur bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins undir forystu Margrétar Rósar Ingólfsdóttur tímabært að staldra við og fá nánari skýringar á þeim hluta listaverksins sem göngustígar í Eldfelli áttu að tilheyra.
Eftir að tillögu okkar var vísað í bæjarráð svo málið fengi frekari meðferð, þá kom lítið nýtt fram þar annað en að engar upplýsingar væru fáanlegar um ásýnd eða gerð göngustíga í Eldfelli af hálfu listamannsins – og íbúakosning jafngilti stöðvun á verkefninu.

Staðreyndin
Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins höfum ekki haft áhuga á því að tala fyrir því að stöðva framkvæmd þessa verkefnis, einungis viljum við fá að sjá hve umfangsmikið inngrip er í náttúru Eldfells og leyfa bæjarbúum ákveða framhaldið. Það er sorglegt að hlusta á málflutning meirihlutans í þessu máli og tilraunir þeirra til að afvegaleiða umræðuna.

Eyþór Harðarson.