Lina kveður ÍBV eftir tímabilið

0
Lina kveður ÍBV eftir tímabilið
Ljósmynd: ÍBV

Hornakonan sænska, Lina Cardell, kveður Vestmannaeyjar eftir keppnistímabilið og flytur heim til Svíþjóðar. Hún hefur samið við Kärra HF en félagið greinir frá þessu í dag. Cardell gekk til liðs við ÍBV haustið 2020 og hefur síðan vart misst úr leik með ÍBV.

Cardell kom til ÍBV úr akademíu IK Sävehof og hafði þá leikið um fimm tugi leikja með liðinu en fyrstu skref sín á handboltavellinum steig Cardell með Malmslätts HF.

Cardell hefur skorað 57 mörk í 18 leikjum með ÍBV í Olísdeildinni á yfirstandandi leiktíð.