Að taka þátt í stjórnmálastarfi getur verið kvíðvænlegt og ákveðin opinberun sem fylgir því að gefa kost á sér. Vinir eða fjölskylda sem hafa kannski aðrar skoðanir en frambjóðandinn skilja ekkert í að viðkomandi trúi á þá sýn sem hann og flokkurinn hafa og tala mögulega ástvini sína niður. Á sama tíma hefur fólk fundið hugrekki til að standa upp fyrir sjálfu sér, fara út fyrir þægindarammann og vill vinna af heilum hug fyrir samfélagið okkar.

Nú hafa þrír listar verið birtir hér í Eyjum og 54 frábærir einstaklingar eru tilbúnir að taka þátt í að gera bæinn okkar betri með því leggja krafta sína í það óeigingjarna starf sem bæjarpólitík er. Sveitarstjórnarkosningar eru spennandi því í þeim felast svo mörg tækifæri, hið faglega starf sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins taka þátt í er upphafið á frábæru tímabili. Að bærinn okkar geti orðið bestur á svo mörgum sviðum. Gleðin og tilhlökkunin sem einkennir hópinn er raunveruleg og smitar út frá sér í samfélagið okkar.

Við í Eyjum erum að lang stærstum hluta Sjálfstæðisfólk og við getum verið stolt af því, við vitum öll hve gott er að búa hérna og hvernig samfélagið blómstraði undir styrkri stjórn okkar. Við vitum öll hvar þarf að gera betur, sömu málefni eru rædd á hverri kaffistofu bæjarins, og án efa þá getum við það. Við þekkjum að sjálfsögðu ekki alla íbúa Eyjanna en sennilega þekkjum við öll einhvern sem bíður sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og við vitum að þessi aðili er frábær.

Það er góður tími í vændum og við ættum kannski öll að taka Sóla til fyrirmyndar, kjarna okkur og hafa vináttuna í fyrirrúmi. Við viljum hvetja alla til að koma í Ásgarð núna á laugardaginn þar sem stefnumótunarvinna næstu ára verður í hávegum höfð, mæting er kl. 11:00 og virk hlustun í boði.

Þetta verður frábær fundur þar sem við horfum til framtíðar og gerum áætlun um hvernig samfélagið okkar verður best. Núna er rétti tíminn til að skora á sjálfan sig og láta til sín taka, yfirstíga það sem hefur komið í veg fyrir að mæta og taka þátt. Vera hluti af samfélaginu og kannski koma sínum sjónarmiðum á framfæri eða bara koma og hlusta á hvað okkur í Vestmannaeyjum finnst að þurfi til að verða best.

Við í Sjálfstæðisflokknum kunnum og viljum hlusta til að bærinn okkar geti orðið bestur fyrir okkur öll.

Ragnheiður Sveinþórsdóttir