Opinn framboðsfundur fyrir sveitarstjórnarkosningar 2022 verður haldinn í Eldheimum miðvikudaginn 11. maí nk. kl. 20:15. Húsið opnar kl 20:00 og verða léttar veitingar í boði.

Fulltrúar framboðanna þriggja, Eyjalistans, Fyrir Heimaey og Sjálfstæðisflokksins, verða á fundinum til að kynna framboðin og svara spurningum fundargesta.

Dagskrá

  • Einn frambjóðandi frá hverjum lista fá um 5 mín. til að kynna framboðin fyrir fundargestum (alls 15 mín.).
  • Frambjóðendum gefst færi á að spyrja önnur framboð 2-3 spurninga (um 15 mín.).
  • Fundargestum gefst færi að spyrja frambjóðendur hnitmiðaðra og málefnalegra spurninga (um 60 mín.)
  • Einn frambjóðandi frá hverjum lista fá 3 mín. í formi lokaorða (um 10 mín.).

Bæjarbúum er einnig boðið að senda spurningar fyrirfram á netfangið [email protected]  Fundarstjóri mun koma þeim spurningum á framfæri við frambjóðendur á fundinum.

Höldum umræðum málefnalegum, hnitmiðuðum og kurteisum.

Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og taka þátt í þessum eina opna framboðsfundi í Vestmannaeyjum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022.