Birgir Stefánsson

Þó svo að ég hafi flutt erlendis fyrir mörgum árum síðan þá hef fylgst vel með Vestmannaeyjum og verið gríðarlega stoltur yfir þeim árangri sem bærinn náði frá árinu 2006 . En nú þykir mér leitt að sjá hvernig farið er með þá góðu fjármuni sem fékkst við söluna á hlutnum í Hitaveitu Suðurnesja.

Mjólkurkúin
Hvernig varð mjólkurkúin til?

  • Bæjarveitur Vestmannaeyja sameinuðust Hitaveitu Suðurnesja. Vinstri menn voru á móti sölunni.
  • Sjálfstæðisflokkurinn seldi hlutinn fyrir metfé í Hitaveitu Suðurnesja. Það fé varð að sjóð sem varð okkar mjólkurkú. Mjólkurkúin gaf af sér mikla mjólk (vexti) og var við góða heilsu undir stjórn fyrri meirihluta.
  • Áður hafði meirihluti vinstri manna selt margar fasteignir bæjarins til Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf sem leigði bænum þær til baka, Sjálfstæðismenn í minnihluta börðust gegn þessari sölu.
  • Fasteignunum var ekki sinnt sem skildi og leigan sem var borguð var há. Alls var greitt um 1,3 milljarðar á verðgildi þess tíma. Reyndist þetta hin mesta vitleysa.
  • Þá kom hagnaðurinn frá mjólkurkúnni að góðum notum og það var hægt var að kaupa fasteignirnar til baka fyrir 1.9 milljarð.
  • Mjólkurkúin stækkaði mikið og gaf af sér mikla mjólk á sama tíma og mikið framfaraskeið átti sér stað.

Mjólkurkúin okkar hefur horast um tæpan 1.5 milljarð

Hvert stefnir sjóðurinn okkar? Ef útgjöldin verða eins á næsta kjörtímabili þá munu sjóðir okkar klárast. Hér má sjá síðustu 3 ár síðustu tveggja meirihluta og mín spá fyrir árið 2022 miðað við fyrri ár. Tölur á núverandi verðlagi.

 

Á sama tíma og lífeyrissjóðir skila afbragðsávöxtun er mjólkurkúin okkar á leið í sláturhúsið með áframhaldandi fjármálaóstjórn. Eflaust eru fjölmargar ástæður fyrir því, en hér eru nokkrar nefndar:

  • Í stað þess að flytja alla stjórnsýsluna á einn stað í hagkvæmt húsnæði Fiskiðjunnar þá var farið af stað í furðulegar framkvæmdir og fjárfestingar.
  • Gríðarlegir fjármunir settir í gamla ráðhúsið sem er mjög óhentugt húsnæði undir stjórnsýslu til að hýsa hluta af starfseminni.
  • Viðhaldsþung fasteign, Útvegsbankahúsið, var keypt undir annan rekstur stjórnsýslunnar.
Gamla sambýlið sem bærinn leigir í dag bauðst bænum til kaups á að því er virðist góðu verði, ef horft er til þess hvað bærinn borgar í leigu. Var verðið mjög hagstætt fyrir kaupandann, það tekur einungis 8 ár að greiða húsið að fullu miðað við núverandi leigutekjur.

 

Eldri borgarar látnir borga

Okkar sameiginlegi sjóður hjá bænum minnkar þrátt fyrir auknar tekjur af eldri borgurum.

  • Afsláttur af fasteignagjöldum til eldri borgara var afnuminn en Sjálfstæðisflokkurinn setti á þennan sanngjarna afslátt til að aðstoða eldri borgara til að búa lengur í eigin húsnæði.
  • Í leiðinni var rekstur Hraunbúða afhentur ríkinu og þjónustan skert. Það vantar greinilega töluvert upp á metnaðinn.

Erum við á hraðferð til Reykjavíkur?

  • Gengið er hratt á sjóði bæjarins.
  • Meirihlutinn fjölgar bæjarfulltrúum.

Þetta eru kunnugleg skref og þau feta sig í átt að Reykjavíkurborg.

Ég mun setja X við D, því ég kýs ábyrga fjármálastjórn. Til þess að vera í fremstu röð sveitarfélaga varðandi þjónustu til íbúa þá þarf mjólkurkúin að gefa vel af sér til þess að þjónustustig, fjárfestingar og skilyrði fyrir búsetu séu framúrskarandi.

Birgir Stefánsson