ÍBV ætlar að bjóða upp á rútuferðir á fyrsta leik strákanna okkar gegn Val í úrslitaeinvígi liðanna. Leikurinn fer fram í Origo-höllinni á Hlíðarenda kl.19:30, fimmtudaginn 19.maí. Miðasala er hafin á miðasöluappinu Stubbur. Farið er með 14:30 ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum og heim með 23:15 ferðinni, ATH Herjólfur bíður eftir okkur.
Stuðningsmannahittingur kl.17:00 á Ölhúsinu. Viktor rakari býður enn og aftur upp á grillaða borgara á meðan birgðir endast og við keyrum stemninguna í gangi fyrir leik.

Farið frá Ölhúsinu uppúr kl. 18:30. Miðinn í rútuna kostar 4.000 kr.- á mann (2.000 kr á legginn) en svo fá þeir sem koma í rútuferðina frítt far í Herjólf í boði Herjólfs ohf! Aðili frá okkur verður í Herjólfsafgreiðslunni fyrir brottför og afhendir miðana. Greitt á staðnum, verðum með posa!
ATH, börn 15 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum!
Vinsamlegst fyllið út eftirfarandi form til að skrá ykkur í rútuferðina. Mikilvægt að skrá sig strax svo við getum áætlað fjöldann!