U-18 ára landslið kvenna tryggði sér í gærkvöld sæti í 8-liða úrslitum á HM kvenna sem fer fram í Skopje í Norður-Makedóníu. Stelpurnar okkar áttu frábæran leik gegn sterku liði Íran í fyrri leik milliriðilsins. Leikurinn fór vel af stað og það var ljóst frá byrjun að íslenska liðið ætlaði sér ekki að gefa tommu eftir. Munurinn fór upp í 13-5 um miðjan fyrri hálfleikinn en íranska liðið klóraði þó aðeins í bakkann og hálfleikstölur 17-10 Íslandi í vil.

Í síðari hálfleik héldu stelpurnar okkar áfram af krafti og bættu í forystuna. Liðið rúllaði vel og markaskorunin dreifðist á marga leikmenn. Markamunurinn fór mest í 12 mörk en þegar lokaflautið gall var staðan 28-17 Íslandi í vil.

Tvær Eyjastelpur eru í liðinu, þær Sara Dröfn Richardsdóttir og Elísa Elíasdóttir, þær spila báðar með ÍBV.

Upplýsingar og myndir eru af vef hsi.is