Krónan svarar ákalli almennings og stjórnvalda um að leggja lið baráttunni gegn verðbólgu og frystir verð á 240 vörunúmerum undir vörumerkjum First Price og Krónunnar. 

Vörur undir vörumerkjum Krónunnar og First Price spanna fjölbreytt vöruval og eru ódýrustu valkostirnir í sínum vöruflokkum. Er þetta eitt af skrefum Krónunnar til að reyna að sporna við hækkandi vöruverði og draga úr áhrifum verðbólgu í matarinnkaupum viðskiptavina.

Krónan hyggst halda verðinu stöðugu fram að áramótum til að byrja með. Komi til lækkunar innkaupsverðs eða gengisstyrkingar á vörum undir þessum vörumerkjum mun Krónan lækka söluverðið sem því nemur. Komi til hækkunar á innkaupsverði eða til gengisveikingar mun sú hækkun ekki skila sér út í verðið til viðskiptavina.

Við erum með fleiri aðgerðir í undirbúningi en stígum þetta skref til að sýna strax í verki að við stöndum með almenningi og erum að reyna að sporna við þeim verðhækkunum sem á okkur dynja.

Frétt á kronan.is

 

Nánar: https://kronan.is/frettir/kronan-frystir-voruverd-til-ad-berjast-gegn-verdbolgunni