Húsfyllir var á framhaldsaðalfundi ÍBV íþróttafélags í gærkvöldi. Á annað hundrað félagsmenn voru mættir til að taka þátt í stjórnarkjöri til aðalstjórnar félagsins ásamt því að kosið var  í önnur embætti.

Sæunn Magnúsdóttir var kjörin formaður stjórnar en hún var ein í framboði. Níu buðu sig fram í sex sæti í aðalstjórn. Þau sem náðu kjöri eru Arnar Richardsson, Bragi Magnússon, Erlendur Ágúst Stefánsson, Kári Kristján Kristjánsson, Örvar Omrí Ólafsson og Sara Rós Einarsdóttir. Varamenn eru Guðmunda Bjarnadóttir og Jakob Möller.

Það er mikil handboltaslagsíða á nýrri stjórn en að Örvari undanskildum eru allir aðalmenn tengdir handboltanum með einum eða öðrum hætti.

Handboltafólk og þeirra bakland var áberandi á fundinum. Athyglisvert er að fráfarandi stjórnafólk náði ekki kjöri í aðalstjórn. Guðmunda Bjarnadóttir er varamaður og Björgvin Eyjólfsson komst ekki á blað en bæði eiga að baki áralangt starf fyrir félagið.

Fráfarandi formaður er Þór Vilhjálmsson sem í áratugi hefur starfað fyrir íþtóttahreyfinguna í Vestmannaeyjum.

Þetta er hallarbylting sem rekja má til deilna um skiptingu tekna félagsins milli handbolta og fótbolta. Þar þótti handboltaarmi félagsins á sig hallað.

Mynd: Sæunn formaður og ný stjórn ÍBV-íþróttafélags.