Ekkert verður af viðureign ÍBV og KA/Þórs í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ sem áformuð var í Vestmannaeyjum í kvöld. Samkvæmt tilkynningu er í ófært í flugi á milli Akureyrar og Vestmannaeyja.

Flauta átti til leiks klukkan 17.30 í Vestmannaeyjum og sýna leikinn í sjónvarpi allra landsmanna. Nýr leikdagur hefur ekki verið ákveðinn en væntanlega liggur hann fyrir í dag.