Ný stjórn var nýlega skipuð hjá Leikfélagi Vestmannaeyja. Albert Snær Tórshamar er nú formaður leikfélagsins í fyrsta sinn eftir langan og flottan feril í leikhúsinu. Zindri Freyr Ragnarsson Cane er varaformaður, Ingveldur Theodórsdóttir er gjaldkeri, Svala Hauksdóttir rekur Eyjabíó, Valgerður Elín Sigmarsdóttir er markaðsstjóri, Goði Þorleifsson er ritari og vefstjóri, Jórunn Lilja Jónasdóttir er meðstjórnandi. “Okkur hlakkar svo sannarlega til að halda uppi lífi og fjöri fyrir ykkur, það eru spennandi tímar framundan,” segir í tilkynningu frá félaginu.