Nokkrar stelpur í 4. bekk GRV tóku sig til og útbjuggu skemmtilegt myndband og sendu inn í Krakkaskaup RÚV ekki rataði atriðið í sjónvarpið en er skemmtilegt engu að síður og má sjá hér að neðan. Með stelpunum í myndbandinu er sr. Guðmundur Örn Jónsson, en sjón er sögu ríkari. Ef einhver lumar á skemmtilegu áramótamyndbandi sem viðkomandi vill deila með fleirum má endilega senda okkur.