KPMG býður til opins fundar um sjálfbærni, á morgun 10. janúar frá kl. 14:00-15:00. Fundurinn fer fram í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2.
Á fundinum mun forstöðumaður sjálfbærni hjá KPMG, Dr. Hafþór Ægir Sigurjónsson, fjalla um sjálfbærnimál fyrirtækja, hvað kröfur eru að koma frá löggjöfinni og fjárfestum, hvað snýr helst að sjávarútvegnum og hvaða tækifæri liggja í sjálfbærri fjármögnun og hringrásarhagkerfinu.
“Nú er um að gera að grípa tækifærið og fræðast betur um þetta heita mál framtíðarinnar. Við hlökkum til að sjá þig!,” segir í tilkynningu um viðburðinn.