Landsnetu vinnur þessa stundina í því að flytja varaaflsvélarnar til Vestmannaeyja. Stöðvarnar sem bera nöfnin Grímsey og Hrísey voru í gær sóttar í Hrútatungu en þær eru nú á leið til Vestmannaeyja þar sem þær munu bætast í hóp þeirra varaaflsvéla sem þar eru. Varaaflið og Vestmannaeyjastrengur 1 munu sjá Eyjum fyrir rafmagni á meðan á viðgerð Vestmannaeyjarstrengs 3 stendur yfir.