Á ársfundi Vinnslustöðvarinnar greindi stjórnarformaður félagsins frá því að stjórnin hefði ákveðið að fresta um sinn boðuðum áformum um nýtt átta þúsund fermetra botnfiskvinnsluhús. Fram kemur á vef fiskifrétta að það væri gert í varúðarskyni vegna alþjóðlegs óvissuástands í efnahagsmálum með tilheyrandi áhrifum á starfsemi fjármálastofnana erlendis og hérlendis. Á ársfundi sem haldinn var í apríl í fyrra var tilkynnt að hafinn væri undirbúningur að uppbyggingu nýs húss fyrir botnfiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar. Gömul hús yrðu rifin og ný byggð í áföngum svo unnt yrði að halda fiskvinnslu gangandi allan tímann.